This side of me
30.09.2007 19:21:25 / loamagg

Nenni þessu bara ekki lengur

Kv. Lóa komin með nóg af þessu!

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 11:34:16 / loamagg

Komið að því =)

Jæja þá er eina af stóru stundunum í lífi mínu runninn upp............

En það hefur ekki í för með sér fjölgun á mannkyninu, held ég geri það ekki í bráð eftir að ég sá mig á myndbandi á írskum, fer ekki að fjölga þessari vitleysu, algjör asni sko..

En ég og hann Arnar minn vorum að kaupa okkur íbúð, en því er nú ver og miður að það er í blokk en maður verður víst að byrja einhversstaðar, keyptum semsagt á garðabrautinni á 1st hæð með bílskúr þannig það er svona smá plús við þetta.....

Fáum svo afhent eftir 43 daga jeij !!! semsagt 1 sept, og það eina sem á eftir að kaupa er ísskápur þekkjum svo mikið af góðu fólki að það gaf okkur borð og stóla og hillusamstæðu og svona =)

þannig stutu eftir innflutningspartyið hjá boggu og stú þá verður bara annað, það er ekkert annað......

En jæja við erum loksins að fara í okkar eigið og það verður LJÚFT !! =)

Kveð í bili.

Lóa íbúðareigandi


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 14:39:39 / loamagg

da summer er her

Jæja þá er maður kominn heim frá úglöndunum og búnað fara á árgangsmót og byrjaður að vinna.

Sem er gott, það var algjört æði úti fengum rosa gott veður og kynntumst skemmtilegu fólki.

Svo fór ég á árangsmót sem var nú bara mjög skemmtilegt allir búnir að segja að fyrsta mótið sé svo leiðinlegt en viti menn það var bara gaman, það er náttúrlega auðvitað gaman þegar einungis skemmtilegt fólk kemur saman og þannig er náttla þessi árgangur =) hinir árgangarnir eru greinilega ekki svo heppnir

Já og svo er ég bara byrjuð að vinna aftur á laboratory - inu =) sem er fjör alltaf gaman að taka blóð og svona.... fæ líka alltaf að gera meira og meira sem er fjör, þá er ekki eins mikill dauður tími.

já og rækin og mataræðið er ekki alveg upp á sitt besta núna en er samt bókstaflega með matar ÆÐI =) en já já það kemur hehe

Síðan er ég búinn að fara að veiða eitthvað 3 sinnum eða eikkað síðan ég kom heim og við erum að fara í veiðiferð um helgina en það koma tveir staðir til greina og eru feðgarnir ekki alveg bunir að gera upp hug sinn, en það hlýtur að koma förum nú á morgun.....

held þetta sé bara gott í bili farinn að vinna meira og aldrei að vita nema ég segi frá veiðiferðinni þó það sé nú vitað fyrir framm að ég mun veiða miklu meira og miklu stærri fiska en þessir gaurar =)

Bless í bili

Kv. Veiðimaðurinn knái. :haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 20:38:03 / loamagg

Búlgaría

Nei halló góðan daginn

ég er að fara til búlgaríu bara ef þið vissuð það ekki =)

fer eftir 12 tíma vúhú en legg af stað eftir færri hef annars ekkert að segja er í heimsókn hjá bróðir minum og inga er að kvarta yfir því að ég sé að blogga á meðan ég er í heimsókn :Þ

semsagt er farinn að spjalla við þau og svo er ég bara farin til úglanda :Þ í tvær vikur með honum Arnari mínum =)

sé ykkur eftir 2 sólbrún og sæt.

Kv. Lóaúglandafari. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 13:23:22 / loamagg

Styttist og styttist..... =)

góðan daginn, þá hef ég lokið fyrsta prófinu og gekk það nú bara alveg ágætlega, þá eru ekki nema 3 eftir og það eru þessi erfiðu.

Þannig nú er það bara að hella sér í lífefnafræðina, Efnafræðina og tækjafræðina allt í bland, eins og það er nú skemmtilegt að vera læra undir allt í einu.

En svona er þetta.

5 dagar í næsta próf, 12 dagar í síðasta próf, 16 dagar í Laugar og og og 18 dagar í Búlgaríu..... hlakkar svo til, og svo eru 33 dagar í vinnu, verður sko næs líka að komast aðeins í vinnu og hvíla sig í heila 3 mánuði frá skúlen..

Jæja hef ekki tíma í þetta reyna að byrjja að gera eitthvað.

Kv. Lói Sem er hvítur sem dúfnaskítur


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 16:41:21 / loamagg

50 % fitubæting =)

Jæja góðan daginn.´

 Þá er lærdómurin kominn á fullt, eða ég er að reyna að koma honum á fult.

Vaknaði hálf 8 í morgun og byrjaði að læra fór svo á æfingu kl 9 og kom mér ekki aftur á stað fyrr en eitthvað um hálf eitt.

Þetta er neflilega málið ég má bara ekki stoppa eina mínútu þá verða það bara 2-4 tímar sko. eins og núna er ég búinn að vera í tveggja tíma pásu, það er ekki alveg að virka sko, bara búinn að vera að éta í 2 tíma =) enda er ég búinn að fitna um helminga frá því ég var að keppa hehe =) sem er samt bara í góðu er ennþá alveg undir því sem telst normalt. =)

Ætla reyndar að reyna halda mér svona eins og ég er núna því ég stefni náttla á það að keppa á bikarmotinu í nóvember.

Núna eru 12 dagar þangað til ég fer í fyrsta prófið og því ætti ég að eyða 23 klst af þessum 24 sem í sólarhringnum eru til að læra =) en jájá ég geri mitt besta

Jæja hef þetta ekki lengra í bili ætla aðeins að reyna að kíkja á þessa Lífefnafræði, þar sem það tekur mann nú svona 5 daga eða eikkað bara að komast einu sinni lauslega yfir allt helv.! efnið sem er í þessum áfanga :evil:

Kveð að sinni Lóa "Bolla" :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 20:46:08 / loamagg

Stelpan náði á pall. 3. sætið !!

Jæja þá er maður kominn heim ótrúlega sátt bara með lífið.

Stóð mig held ég bara alveg rosa vel á þessu móti og rosaleg framför frá því í fyrra, og fékk ég líka að heyra það. og það var sko gaman =)

Ég var í 2 sæti í hraðaþrautinni, og í 3 sæti í heildina sem er gott =) var meira að segja í 4 sæti í þrautinni yfir allar konurnar sem kepptu en þær voru 24, sem er bara helvíti góður árangur =)

Marianne skvís var svo í fyrsta sæti í hraðaþrautinni og öðru í samanburði og var því í fyrsta sæti í heildina sem er alveg glæsilegur árangur. Rosa flott og hennar fyrsta mót.

En ég er semsagt með útbelgdan maga núna og líður ekkert geðveikt vel, en það var samt gott að fá að borða góðan mat í gær, svo verður maður að passa sig núna að verða ekki belgur =)

En ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili, er farinn að slappa aðeins af þar sem maður hefur ekki gert það í soldið langan tíma núna.

En ég vil enn og aftur þakka öllum þeim sem stóðu við bakið á mér í gegnum þetta, það er alveg frábært að fá svona stuðning. því þetta er erfitt og dýrt sport en alveg hrikalega gaman Takk Kærlega fyrir allt saman =)

Kv. Lóa 3rd runner up =)


» 14 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 13:04:35 / loamagg

16 dagar takk fyrir takk

Góðan daginn

Það styttist óðum í mótið og er maður farinn að líta svona sæmilega út, ætlaði mér nú að gera aðeins betur en þetta, en það kemur bara fyrir næsta mót.

Ég hef haft nóg að gera skal ég segja ykkur síðustu vikur, er á þrem æfingum á dag. semsagt fer að brenna á morgnanna og mæti svo í skólann (þar semsagt alltaf að skrópa í fyrsta tíma því ég næ ekki fyrsta strætó). Þegar ég kem svo úr bænum fer ég að lyfta og svo seinna um kvöldið fer ég svo aftur að brenna, þarna inná milli er ég svo að gera allann matinn og svona, svo reyni ég auðvitað að koma lærdóminum einhver staðar að, en þó er oft erfitt að koma honum inn í planið en þetta gengur nú samt allt saman upp á endanum.

Annars er svona já voða lítið annað að frétta af mér en æfingar skóli vinna og smá pirringur þar á milli, því þeir sem þekkja mig vita að ég er nammigrís, og það er sko ekkert grín að þurfa að fara að sleppa namminu, gæti það svosem á venjulegu mataræði, því þá kallar fólk margt sem er nammi í mínum augum bara mat. Það er semsagt ekkert nammi fyrir mig fyrr en eftir mót. En ég hlýt að þrauka það.

Á reyndar enn eftir að finna mér skó fyrir mótið en ég og mamma gerðum heiðarlega tilraun til þess á miðvikudaginn í síðustu viku, en nei ég fann fullt af flottum skóm og það voru engir af þeim til í minni stærð,´við gáfumst upp og fórum heim. Frekar svekkjandi :!:

Held ég hafi ekki mikið meira að segja í bili, en ég reyni að blogga eitthvað aðeins meira áður en ég fer norður. segi kannski stöðu mála og svona.

Kv. Lóa lipurtá


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 17:59:45 / loamagg

Loksins Loksins

Jæja

Nú er ég loksins laus við þetta helvíti út mér, mikið var...

 En já ég var í fitumælingu og þetta bara lofar góðu er kominn neðar heldur en ég var í lok mars í fyrra þannig þetta gengur bara allt vel, hef þó ekki mikið verið að brenna því ég einfaldlega kemst ekki á morgnanna, fer alltaf í skólann svo snemma, en ég er að reyna finna einhverja lausn á því.

Síðan eru bara frábærar fréttir erum held ég allavega 4 stk sem erum að fara að keppa á Akureyri um páskana þannig ef þið eruð ekki búið að redda ykkur samastað þá mundi ég drífa í því að reyna að fá pláss einhvers staðar því það er allt stappað þarna þessa helgi, skíðafólk, kraftlyftingafólk, fitnessfólk, vaxtarræktarfólk.

Þannig nú er bara að koma lærdómnum í gang, það gengur eitthvað erfiðlega, en ég ætla að koma hausnum á mér í gang á morgun og fara bara oftar upp í skóla að læra mjög þægilegt að vera þar og maður gerir þá líka eitthvað.

Hef nú samt ekki mikið meira að segja lítið sem gerist hjá mér annað en æfingar og skóli. Það er kannski spurning um að opna kannski bara bók núna og glugga í hana í staðinn fyrir að gera ekki neitt... hmm

Jæja bless í bili. :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 16:52:47 / loamagg

Skóli - æfingar - veikindi.....

Hellú

Jæja skólinn kominn á fult skrið ásamt skurði og öllu tilheyrandi, veikindi og ég veit ekki hvað og hvað.....

Er orðinn frekar pirruð sko búinn að vera veik í fokkinn tvær vikur, og svo kemur alltaf bara eitthvað nýtt þegar hitt er að fara, kvef, hóstaköst, hálsbólga, eyrnabólga, hiti, hausverkur.

En ég læt það nú ekkert stoppa mig sko, marr fer nú í ræktina fyrir því og mæti í skólann svona eins og ég get, vont að þurfa að bíða útí í kuldanum þó.

En nú hlýtur þetta að fara drulla sér úr líkamanum hef´ekki tíma í svona vitleysu, svo langar manni alltaf svo í nammi þegar maður er með svona drullu, þannig ég er búinn að vera stelast örlítið fyrir utan það að eg kemst ekkert rosalega mikið á brennsluæfingar. En fitu % er enn á niðurleið en það gerist nú hægt, þannig ég verð eitthvað að fara gera ef ég ætla að ná því sem ég ætla mér!! =)

Já ég hef semsagt hætt við að keppa í kraflyftingunum vegna peningaskorts, frekar súrt maður er kominn svo góðar þyngdir, en marr heldur bara áfram að æfa það líka og verður þá bara með á næsta ári þegar maður verður ekki að æfa fyrir þetta páskamót.

Reyndar eru engar stelpur að keppa í mínum flokki þannig það er líka hvort eð er ekkert svaka spennandi að keppa við sjálfan sig, en þá fær maður allavega pottþétt 1 sætið, koma svo stelpur drýfa sig í ræktina og gera eitthvað að viti =) kannski ekki margar sem hafa áhuga á að lyfta fyrir Kraft.

Jæja held ég hafi ekki fleiri fréttir að færa í bili. =)

Reyni kannski að vera duglegri í blogginu og segja ´frá stöðu mála ef til vil...

Kv. Lóa beibí


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 19:43:08 / loamagg

Allt að fara í gang...

Góðan daginn allir saman

Jæja þá er ég loksins búinn að fá úr þessum prófum.... og ég náði öllu =)

Skurður er byrjaður fyrir næsta mót og skólinn byrjar á mánudaginn.....

hef ekki mikið meira að segja í bili, og ég er farinn að skoða íbúð =)

bless í bili :klikk:


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 15:02:44 / loamagg

Eitt eftir

Jæja þá er bara eitt próf eftir og ég er engan veginn að nenna að læra fyrir það, það er semsagt 20 des og ég er ekki enn byrjuð að læra...... er svona eitthvað að reyna að kíkja á þetta.... en Step up er að koma út í dag og ég er eiginlega bara að bíða eftir henni svo ég geti horft á fokkinn dýrið sem leikur í henni...

Fór til Jóa áðan, og enn er þetta bara allt á niður leið sem er flott, því ég er að minnka fitu en næ enn að halda þyngdinni sem er Gott =)

Svo loksins þegar maður er kominn í jólafrí þá byrjar bara skólinn aftur, þetta er ekki alveg nógu gott, annars hlakkar mér geðveikt til næsta árs nóg að gera þá sko...

Er svona pæla í að keppa í bekkpr mótinu í feb og svo er íslandsmeistara mót unglinga líka í feb sem ég er að pæla í að skella mér bara lika, það er að segja ef ég á nóg pening til að kaupa mér gallana....  langar allaveg geðveikt að prófa, svo er náttla fit. mót í april og svo náttla er marr líka í skúlen og svona......

já og mér gekk bara vel í prófinu sem ég var í á þriðjudaginn en hitt, gekk nú sæmilega en var nú ekki sátt sko, búin að læra allt geðveikt vel og djúpt og svona neinei kemur ekki eitthvað ógeðslega yfirborðskennt nánast því svo grunnt að maður var liggur því ekki búin að læra það. Ekki sátt sko.....

En já hef þetta ekki lengra í bili, orðið nógu langt. Bless

Kv: Lóa efn.

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 13:59:07 / loamagg

Próf nálgast.

Góðan daginn

Sit bara heima að læra og mun sitja hér þangað til í lok des, er ekkert allt of viss um að það komi færsla bara fyrr en 20 des =)

Er hvort eð er orðin svo óvirk í mörgu ætli ég verði ekki bara að bæta þessu líka á listann.

Gangi ykkur vel þeir sem eru að fara í próf og hafið þið það bara gott þeir sem eru ekki að fara í próf :Þ

Þangað til næst

Kv. Lóa lestur fyrir próf. 8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 21:32:09 / loamagg

Hvað segiði er þaggi bara :)

Góða kvöldið

Var bara svona að hugleiða, hvort ég ætti að fara eður ei.

Semsagt laugardaginn 25. nóvember er íslandsmót í réttstöðulyftu og var ég að pæla að keppa svona að gamni.... kíkja á þetta

Prófa svona, en þá þarft ég reyndar að fara kaupa einhvern galla, var að vonast til að maður mætti ráða hvort marr væri í þannig =)

En hvað segiði prófa þetta eða bara sleppa þessu =)

megið segja mér hvað ykkur finnst ef einhver les þetta þar að segja....

Kv. Lóa óákveðna


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 18:16:00 / loamagg

Same Old Same Old

Góðan daginn
það gerist nú ekki mikið nýtt hjá mér um þessar mundir, en um helgina fór ég á ifbb fitness mótið.
Rosalega var það nú óskemmtilegur viðburður, þúsundsinnum skemmtilegra að horfa á icefitnesið. Illa staðið af þessu móti, svo var náttúrlega bara samanburður allataf skemmtilegra þegar það er braut og svona líka.....

En það sem gerði þetta kvöld skemmtilegt var vaxtarækin, Hrönn Sigurðar systir Heiðrúnar fitness brilleraði alveg sko og gerði kvöldið skemmtilegt =)

Úrslítin voru hins vegar upp og ofan og fannst mér hvað helst úrslitin í vaxtarækt karla alveg bara já.. segi ekki meir.....

Fannst hin úrslitin jú alveg fín held ég bara hefði kannski mátt breyta kannski tveimur stúlkum að mínu mati.....

Annars er lítið að frétta af mér nema lærdómur og meiri lærdómur fer  nú að styttast í prófin og verð ég kominn í jólafrí 20 des..... jeij

Svo eftir jól/áramót tekur bara við skurður fyrir mótið á akureyri.... og skólinn aftur þar sem ég reikna með/ætla að komast í gegnum þennan klausus....

En ég hef ekki mikið meira að segja í bili og kveð að sinni.....

Kv. Bara Lóa







» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6